| aðalsíða | um mig | sviðsverk | video | ýmislegt | linkar | myndir |

click here for english

Benetton upptaka… 22Oct06 | 0

Nú stendur fyrir dyrum upptaka á öðrum kafla hins svokallaða “Benetton-project.” Ef veður verður hagstætt munum við taka upp þriðjudaginn 24. október. Eftir að taka upp fyrsta hlutann í sumar kviknaði sú hugmynd að gaman væri að gera 4 myndir alls með þessu sama þema, þ.e.a.s. einn dansari dansar frasa sem ég hef samið meðan dansari númer tvö horfir á, þá dansar dansari tvö eftir minni það sem hann sá og dansari þrjú horfir á og svo framvegis. Svolítið eins og hvísluleikurinn sem margir kannast við og hafa leikið. Í þessum myndum er ég að skoða hvernig stuttur dansfrasi breytist við það að fara í gegnum filterinn sem hver dansari í rauninni er. Benetton nafngiftin kom til af því að til þess að hafa sem mesta fjölbreytni í hlutverkaskipan hjá mér valdi ég fjóra bekkjarfélaga mína úr skólanum sem öll eru af sitthvorum kynþættinum. Afraksturinn mun birtast hérna á vefsíðunni eftir því sem myndirnar eru tilbúnar þannig að endilega fylgist með – ég mun tilkynna frumsýningarnar hérna á vefnum þegar fram í sækir. Fyrsta myndin er grófklippt sem stendur og þegar hún er fullunnin mun hún birtast hérna á video-síðunni.

Þessi síða:

Hönnun og vinnsla var að mestu í höndum Guðmunds Helgasonar,
tæknilega aðstoð veitti Jóhannes Erlingsson
Template hannaði derek punsalan
ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN
Endilega kvittið í GESTABÓKINA