Vorútgáfa Benetton verkefnisins
Jæja – þá er loksins komið að því að filma fjórða og síðasta hluta Benetton Verkefnisins sem ég byrjaði að vinna að fyrir um ári síðan. Vorið er sem fyrr sagði fjórði hlutinn en áður er ég búinn að mynda dansarana mína á þremur stöðum í þremur árstíðum hérna í New York. Afraksturinn ætti svo að birtast í endanlegri mynd hérna fyrr en síðar og aldrei að vita nema maður reyni að koma þessu á einhverjar hátíðir hingað og þangað um heiminn…
Fleiri hugmyndir eru að gerjast í kollinum á mér og vonandi að ég nái að hrinda þeim í framkvæmd fyrr en síðar.
No Responses