+/- í Kastljósi
Í dag 1.desember var stuttmyndin Plús/mínus, sem ég leik í sýnd í Kastljósinu á RÚV.
Myndinni leikstýrði Erla B. Skúladóttir sem er kvikmyndaleikstjóri í New York og ásamt mér leikur í henni Ingunn Erla Eiríksdóttir. Kvikmyndatökumaður var Brian Rigney Hubbard en hann og Erla voru bekkjarsystkini við kvikmyndadeildina hérna við NYU -Tisch School of the Arts.
Myndin er hluti af 40 mynda röð sem Félag kvikmyndagerðarmanna stendur fyrir í tilefni fjörutíu ára afmæli félagsins. Þeim fannst meira virði að verja peningum í þessar myndir heldur en einhver veisluhöld sem kannski ekki myndu skilja mikið eftir sig. Alltaf mikilsvert þegar menn leggja fé í listsköpun finnst mér. Það má horfa á myndina á vef Ríkisútvarpsins HÉRNA næstu tvær vikurnar eða svo.
No Responses